Í dag fóru Eydís og Valla með 5.bekk í náttúrufræði í Rjóðrið. Á leiðinni tíndum við laufblöð og sveppi en við höfum verið að fræðast um skóga, tré og sveppi í náttúrufræðibókinni okkar í vikunni. Allir voru duglegir og áhugasamir og tíndu heilan helling. Við spáðum og spekúleruðum í hinum ýmsu jurtum, laufblöðum og sveppum. Við munum svo í næstu viku skoða laufblöðin betur og greina þau með greiningarlyklum. Einnig ætlum að skoða sveppina í víðsjá og fletta þeim upp í sveppabók sem einn nemandi okkar var svo góður að koma með. Við tókum auðvitað fullt af myndum. Frábær tími í góðu veðri með flottum krökkum.
Heimilisfang 10 | 600 Akureyri Sími á skrifstofu: 123 5678 Netfang: skolanafn@skolanafn.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 456 7895 / skolanafn@skolanafn.is